Fréttir

SFÍ gangan 13/2 kl. 18:00

11. febrúar 2013

Nú er komið að því að halda SFÍ gönguna sem var á dagskrá í janúar. Gangan verður á miðvikudaginn 13/2 kl. 18:00. Allir flokkar og keppt með frjálsri aðferð. Skráning hjá bobbi@craft.is
Einnig verður tekið við skráningum kl. 17:00-17:30 á miðvikudaginn

Best er að skrá sig sem fyrst,  þannig flýtum við fyrir allri vinnslu

 

Einstaklingsstart.

 

8 ára og yngri 0,8 km engin tímataka

9-10 ára, 1,6 m , tímataka

11-12 ára 2,5 km

13-14 ára 3,75 km

15-16 ára 5,0 km

17+ konur 5,0 km (2x2,5 km)

20+ karlar 10 km (3x3,3)

Opinn flokkur karlar og konur (2x3,3) engin tímataka

Nánar

Sjoppuvaktir foreldra

25. janúar 2013

Allir foreldrar skíðabarna þurfa að taka vakt í sjoppunni í Tungudal. Á foreldrafundi um daginn skráðu margir sig á vaktir, en eru þeir sem ekki hafa nú þegar skráð sig hvattir til að hafa samband við Kristín Ósk gsm. 898-5456 við fyrsta tækifæri.

 

Vaktir vetrarins

19. jan. - Jenný Jensdóttir

20. jan. - Jói Bakari

 

26. jan. - Gunnar Páll og Harpa

27. jan. -

 

2. feb. -

3. feb. -

 

9. feb. - Kristján og Heiða

10. feb. - Kolbrún Elsa

 

16. feb. - Guðbjörg Rós

17. feb. - Siggi og Ragga

 

23. feb. - Kristín Bj.

24. feb. - Emma

 

2. mars - Lilja D.

3. mars - Hildur Elísabet

 

9. mars - Guðfinna Guðmunds.

10. mars - Martha Örnólfs

 

16. mars - Hanna Mjöll

17. mars - Sigga Lára

 

23. mars - Ásgerður

24. mars - Hólmfríður Vala

 

Enn eru nokkrir dagar í febrúar og mars lausir sem og allir páskarnir.

Nánar

Snjódagurinn

19. janúar 2013

Á morgun, sunnudag, er hin svokallaði alþjóðlegi snjódagur og þá er tilvalið að fara og notfæra sér skíðasvæðin sem er í túnfætinum hér hjá okkur. Það verður hægt að fá lánuð/leigð skíði og prófa og á báðum svæðum verður fólk til taks sem getur leiðbeint um hvernig á að athafna á skíðum. Kakó og kaffi, ásamt kexi og kleinum verða í boði skíðasvæðisins. Hvetjum alla til að kíkja við og hafa með sér sleða eða eitthvað til að renna sér á og hafa gaman í snjónum. Það er góð spá fyrir morgundaginn og vonumst við til að sjá sem flesta.

Stjórn Skíðafélagsins

Nánar

Úrslti úr Boðgöngu sem haldin var 16/1/2013

17. janúar 2013
Mynd úr startinu í gærkvöldi
Mynd úr startinu í gærkvöldi

Úrslit eru komin úr boðgöngu sem haldin var í gærkvöldi, frábær þátttaka 18 sveitir skráðar til leiks, krakkar fóru 800 m, unglingar fór 1500 m og þeir eldri fóru 2,5 km hring. Endað var með skemmtilegu kaffisamsæti og verðlaunaafhendingu í skála okkar göngumanna, Skíðheimum upp á Seljalandsdal

Nánar

Styrktaraðilar