Snjor.is - Fréttir
Á ársþingi HSV, sem haldið var á Þingeyri þann 27. maí síðastliðinn, hlaut Skíðafélag Ísfirðinga heiðurinn að fá nafnbótina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, afhenti stjórnarmeðlimum og þingfulltrúum félagsins viðurkenninguna.
Stjórn SFÍ er stolt af þessum árangri. Að baki honum liggur mikil vinna og heildræn uppbygging á stefnu og starfsháttum félagsins.
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaviðurkenning íþróttahreyfingarinnar og gildir í fjögur ár. Handhafar hennar hafa samþykkt skýrar stefnur og viðbragðsáætlanir á öllum helstu sviðum:
Fræðsla og forvarnir
Jafnréttismál
Umhverfismál og félagsmál
Persónuvernd og siðareglur
Fjölbreytt markmið og skýrar stefnur tryggja að allir sem koma að starfi félagsins vinni að sama takmarki og styrkja SFÍ til framtíðar.
Aðalfundur SFÍ verður haldinn miðvikudaginn 27. maí klukkan 20.00 í skíðaskálanum í Tungudal.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Stjórn leggur fram skoðaða reikninga félagsins.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar fyrir næsta starfsár
6. Önnur mál
Hvetjum alla til að mæta!
Unglingameistaramót Íslands fór fram í Tungudal helgina 10-12. apríl 2026, til viðbótar var keyrt svig Bikarmót fimmtudaginn 9. apríl.
Fimmtudagurinn gekk vel fyrir sig og svigmótið var keyrt í bakka 1 og 2 í Miðfelli. Aðstæður voru góðar en hlýtt í veðri og skúrir, svigbakkarnir voru saltaðir og héldu þeir sér vel í keppninni.
Á föstudag var gott veður, það hafði fryst undir morgun og hörð skel myndast ofan á blautum snjónum. Vegna þessa aðstæðna var keppni blásin af og frestað til laugardagsins.
Laugardagurinn gekk vel fyrir sig. Frábært færi, hart og gott en vindur og skafrenningur gerðu erfitt fyrir á köflum. Keppendur og starfsmenn létu það ekki á sig fá og kláruðu bæði stórsvigs og svig mót í dag með glæsibrag.
SFÍ átti fjóra keppnendur á mótinu, það voru þær Auður Ýr Alexíusdóttir, Árdís Níní Liljudóttir, Ásthildur Chiaophuang og Katrín Dalía Daníelsdóttir. Þær stóðu sig vel og fá góða reynslu í reynslubankann.
Á laugaradagskvöldi var UMÍ slúttað með kvöldverði og verðlaunaafhendingu á Logni á Hótel Ísafirði. Keppni sunnudagsins var blásin af vegna veðurs.
Heilt yfir frábært mót, við þökkum keppendum og gestum fyrir komuna og ekki síður þökkum við öflugu starfsfólki mótsins, foreldrum og velunnurum félagsins fyrir góð störf.
Hér má finna úrslit helgarinnar: Úrslit UMÍ
Það er aldeilis við hæfi að SFÍ bjóði upp á gott gönguspor í tilefni Skíðaviku sem sett verður á morgun miðvikudag. Við höfum beðið eftir nægum snjó til að nota sporann sem keyptur var í vetur með Uppbyggingastyrk frá Ísafjarðarbæ.
Búið er að troða um 2 km spor á Siggatúni og 4,3 km spor í Tunguskógi. Vonandi verður svo áframhaldandi blíða eins og á meðfylgjandi myndum og að allir nýti sér sporið yfir páskana.
Gleðilega páska!
Skíðablaðið 2026 er komið út. Skíðabörn bera eintök út í hús þessa dagana.
Forsíðumyndirnar eru tvær, af ólympíuförunum Degi Benediktssyni og Örnu Sigríði Albertsdóttur. Í blaðinu eru viðtöl við þau og fjölmargar aðrar greinar af ýmsu tagi. Fjölmörg fyrirtæki styðja útgáfu blaðsins sem Skíðafélag Ísfirðinga er þakklátt fyrir.
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir fór fyrir ritnefnd blaðsins eins og fyrri ár.
Blaðið er hægt að lesa hér á vefnum, undir Útgefið efni, en þar er hægt að lesa Skíðablöð aftur til 1948 auk blaðsins Ferskí sem lengi var gefið út til að styrkja ferðasjóð skíðaiðkenda.
Skíðafélag Ísfirðinga stefnir að því að verða fyrirmyndafélag ÍSÍ til að styrkja starfsemi félagsins og tryggja að hún byggist á fagmennsku, öryggi og skýrum gildum. Með því viljum við skapa enn betra umhverfi fyrir iðkendur, þjálfara, sjálfboðaliða og foreldra, þar sem áhersla er lögð á virðingu, gleði, jafnrétti og jákvæða upplifun allra sem koma að starfinu.
Markmiðið er að efla félagið til framtíðar, bæta skipulag og umgjörð og sýna að Skíðafélag Ísfirðinga vill vera traustur og öflugur vettvangur fyrir íþróttastarf á Ísafirði og nágrenni. Vinnan við fyrirmyndafélag er því mikilvægur þáttur í að byggja upp sterkt og heilbrigt félag fyrir börn, ungmenni og samfélagið allt.
Stjórn hefur unnið markvisst undanfarna mánuði að þessari viðurkenningu og er vinnan nú vonandi á lokametrunum.  Allar upplýsingar um fyrirmyndafélagið er að finna hér á heimasíðu SFÍ undir Fyrirmyndafélag og verða frekari gögn sett þar inn jafnóðum.
Það hefur vart farið fram hjá neinum að Dagur Benediktsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga hefur í dag keppni á Ólympíuleikunum. Dagur keppir í 20 km skiptigöngu, þar sem fyrst eru gengnir 10 km með hefðbundinni aðferð og síðan 10 km skautað. Keppnin byrjar klukkan 11:30 og er sýnd á RÚV2.
Hjá Skíðafélagi Ísfirðinga, líkt og meðal Ísfirðinga allra, ríkir mikil gleði og stolt yfir því að eiga fulltrúa á leikunum. Af því tilefni er rétt að segja aðeins frá okkar íþróttamanni og gefa ykkur kost á að kynnast honum aðeins betur.
Dagur Benediktsson fæddist 17. júní árið 1998 á Ísafirði. Hann er sonur Stellu Hjaltadóttur og Benedikts Bjarnasonar og á eina yngri systur, Auði Líf Benediktsdóttur. Hann flutti ungur ásamt fjölskyldu sinni til Danmerkur, en sneri aftur til Ísafjarðar þegar hann var að fara að byrja í grunnskóla, þar sem hann ólst upp í faðmi fjallanna!
Dagur hefur stundað skíðagöngu hjá SFÍ frá barnsaldri og samhliða því æfði hann knattspyrnu allt fram til 17 ára aldurs þegar hann valdi skíðin. Móðir hans, Stella, sem sjálf er þekkt skíðakona, þjálfaði hann og systur hans fyrstu árin ásamt öðrum iðkendum.
Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2017, einu ári á undan jafnöldrum sínum. Dagur fluttu til Östersund í Svíþjóð, tvítugur að aldri, til þess að einbeita sér alveg að skíðagöngunni og æfa við bestu aðstæður.  Samhliða því að æfa við bestu aðstæður hefur Dagur klárað BS gráður í viðskiptafræði með áherslu á sjávarútvegsfræði svo hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur!
Sem íþróttamaður er Dagur þekktur fyrir mikinn viljastyrk, aga og sjálfstæði í æfingum. Þegar hann dvelur á Íslandi, til dæmis yfir sumartímann, æfir hann oftast einn, sem krefst mikillar einbeitingar og þrautseigju. Hann er rólegur og jarðbundinn í framkomu og leggur meiri áherslu á ferlið og stöðuga þróun sína sem íþróttamaður en á frægð eða hrós.
Dagur er í sambúð með Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur sem er fremsta skíðakona okkar íslendinga í alpagreinum og er aðdáunarvert að fylgjast með samvinnu þeirra beggja í að láta draumana sína rætast.
Samhliða skíðagöngunni hefur Dagur einnig mætt í keppnishlaup og náð þar góðum árangri innanlands. Sumarið 2025 sigraði hann hálfmaraþon Reykjavíkurmaraþons og hljóp þá sinn besta tíma, 1:12:52. Sá árangur vakti verðskuldaða athygli. Hann sagði m.a frá markmiðinu sínu í hlaðvarpsþættinum Langa og hvernig hann hefur verið að æfa undanfarin ár.
Dagur hefur tvisvar sinnum verið valinn íþróttamaður Ísafjarðarbæjar, árið 2022 og 2024.
Dagur er einnig mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur Skíðafélags Ísfirðinga. Hann gefur sér jafnan tíma til að spjalla við yngri keppendur og miðla reynslu sinni þegar hann er á svæðinu og hefur þannig haft jákvæð áhrif á næstu kynslóð skíðagöngufólks.
Dagur hefur sjálfur sagt frá því að markmið hans hafi verið að komast á Ólympíuleikana í Peking árið 2022, en hann var þá ekki langt frá því að tryggja sér sæti. Að komast ekki á þá leika hafði mikil áhrif á hann og auðvelt hefði verið að gefast upp. Það kom hins vegar ekki til greina. Síðustu fjögur ár hefur hann unnið markvisst að þessu markmiði og nú hefur vinnan skilað sér.
Það er því sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Degi á Ólympíuleikunum eftir allt það starf og þá fórn sem hann hefur lagt í ferlið.
Það er viðeigandi að láta fylgja með mynd af Degi með þar sem hann er að taka sín fyrstu skref í sportinu.
ÁFRAM DAGUR OG ÁFRAM ÍSLAND!
Um síðastliðna helgi frá Grétar Smári Samúelsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga að taka þátt í keppni í Þrándheimi sem er aðallega hugsuð fyrir U23. Grétar Smári sendi ritara SFÍ upplýsingar um keppnina.
Grétar sagði þessa  keppni vera notaða sem úrtökumót fyrir norska unglinga sem vilja komast á HM unglinga fyrir hönd Norges í Lillehammer 2.-8.mars.  Grétar sagði að þetta mót væri mjög sterkt og í erfiðri keppnisbraut sem væri góður undirbúningur fyrir Lillehammer. Hann sagði að keppnishelgin hafi byrjað á 10km hefðbundinni göngu með einstaklingsstarti. Grétar skoraði sín bestu FIS stig á ferlinum eða 133.
Daginn eftir keppti Grétar í sprettgöngu með frjálsri aðferð og var sáttur með frammistöðuna sína þar sem hann var númer 70 af 119.
Á sunnudeginum var 20km ganga með frjálsri aðferð þar sem var startað með einstaklingsstarti. Grétar átti fínan dag og var sáttur hvernig hann útfærði gönguna. Fékk hann 137 FIS punkta og sá hvað allar æfingarnar hafa skilað sér síðustu mánuði en hann hefur lagt mikið á sig við æfingar erlendis undanfarna mánuði þar sem hann er búsettur í Noregi. Það mun koma í ljós mjög fljótlega hverjir verða valdir til þess að fara á HM unglinga.
Sannarlega spennandi tímar framundan hjá iðkendum SFÍ, bæði hérlendis og erlendis.
Vetrarólympíuleikarnir verða settir á Ítalíu þann 6.febrúar og lýkur þann 22.febrúar.
Dagur Benediktsson frá SFÍ mun hefja keppni á Ólympíuleikunum þann 8.febrúar þegar keppt verður í skiptigöngu í Tesero, þar sem allar keppnir í skíðagöngu fara fram.
Dagur er búinn að leggja mikið á sig í undirbúiningi fyrir þetta stærsta svið íþróttamanna. Hann mun taka þátt í 20km skiptigöngu þann 8.febrúar , sprettgöngu 10.febrúar , 10km með frjálsri aðferð 13.febrúar  og 50km með hefðbundinni aðferð þann 21.febrúar.
Við fylgjumst að sjálfsögðu spennt með Degi og erum mjög stolt af honum!  Hann er frábær fulltrúi Íslands og Ísfirðinga og við óskum honum góðs gengis.
Endilega fylgist með honum á instagram undir " da9gur "  og við munum vera dugleg að deila fréttum af honum á instagram einnig undir skidafelag_isfirdinga
Dagur setti inn þetta skemmtilega myndband í gær af undirbúningi fyrir leikana.
https://www.instagram.com/da9ur/reel/DUQf16PDLi9/
ÁFRAM DAGUR!
Nú fara æfingar að komast í nokkuð fastar skorður miðað við það magn af snjó sem við höfum núna.  Það vantar enn töluverðan snjó en þó er hægt að fara á gönguskíði á litlu svæði á Seljalandsdal og vonum við að sá snjór sem er kominn haldi sér.
Allar æfingar og skipulag er uppfært í ABLER og ættu þeir krakkar sem æfa skíði að vera skráðir í sinn hóp. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvern og einn hóp og skráningalinkur SFÍ í Abler er að finna hér.  Mikilvægt er að skrá krakkana til að vera í hóp á Abler.
En ath þessar upplýsingar miðast við daginn í dag 14/1 og breytist þetta hratt og því mikilvægt að fylgjast með tilkynningum þjálfara í Abler.
Skíðaganga.
Guli hópur: Krakkar í 1-4 bekk.  Íþróttaskólinn hóf göngu sína í gær, 13.janúar með fyrstu æfingunni á Seljalandsdal. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtugögum kl 17:00.  Börn eru skráð hjá Íþróttaskóla Ísafjarðarbæjar hér.
Blái hópur: Krakkar í 5-6 bekk og krakkar úr 4 bekk sem hafa æft gönguskíði. Þessir krakkar hafa verið á styrktar og línuskauta æfingum meðan beðið hefur verið eftir snjónum. Æfingar eru sameiginlegar með alpa og brettakrökkum.
Austurvegur mánudaga og miðvikudaga kl 18:00
Seljalandsdalur fimmtudaga kl 17:00.
En ath þetta er fljótt að breytast og mikilvægt að vera skráður í Abbler og fylgjast með tilkynningum þjálfara þar.
Alpagreinar.
Því miður komumst við ekki enn á snjó og eru styrktaræfingar í boði fyrir krakka í alpagreinum í 5.bekk og uppúr en alveg óljóst hvenær æfingar fyrir yngsta stig, 1.-4. bekk hefjast. Allar upplýsingar um styrktaræfingar eru í Abler.
Svarti hópur:
Æfingarnar eru í Stöðinni á eftirfarandi tímum:
Sunnudagar kl. 11:00-12:00
Fimmtudagar kl. 15:30-16:30
Blái hópur:
Krakkar í 5-6 bekk. Þessir krakkar hafa verið á styrktar og línuskauta æfingum meðan beðið hefur verið eftir snjónum. Æfingar eru sameiginlegar með öllum deildum SFÍ.
Austurvegur mánudaga og miðvikudaga kl 18:00.