Fréttir frá Aðalfundi SFÍ
Aðalfundur SFÍ var haldinn þann 5. maí s.l í Skíðaskálanum Tungudal. Mjög góð mæting var á fundinn og margar góðar umræður. Þær breytingar urðu á stjórn að úr stjórn gengu Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir ritari og Ingibjörg Heba Halldórsdóttir varamaður og eru þeim færðar kærar þakkir fyrir þeirra ómetanlega vinnuframlag sem þær hafa fært í þágu SFÍ.
Ný stjórn SFÍ var samþykkt samhljóða en í stjórn SFÍ eru núna:
Elena Dís Víðisdóttir – Formaður
Ásgerður Þorleifsdóttir
Jóna Dagbjört Pétursdóttir
Jóhanna Fylkisdóttir
Ingibjörg Elín Magnúsdóttir
Varamenn
Vignir Örn Pálsson
Dóra Hlín Gísladóttir
Aðalfundargerð, ársskýrsla og ársreikningur fyrir árið 2024 eru að finna hér á síðunni undir SFÍ - fundargerðir og ársreikningar.