GULI HÓPUR (Krakkar í 1.-4. bekk)
Haustæfingar - börnum í 2-4 bekk og er boðið upp á að koma og æfa tvisvar í viku september til desember. Það æfa allir saman, þ.e alpa krakkar, göngukrakka og brettakrakkar.
Vetraræfingar - æft er tvisvar í viku frá 1. janúar hvert ár ef snjór leyfir. Í byrjun vetrar er haldið byrjendanámskeið þar sem algjörir byrjendur fá grunnþjálfun í að standa í brekkunni og geta sjálfir farið í lyftuna. Ef börn eru enn óörugg og geta ekki verið ein í lyftu þegar regluleg þjálfun hefst þarf foreldri eða forráðamaður að fylgja börnum á æfingu til að byrja með.
Börnunum er síðan skipt í tvo hópa og gert er ráð fyrir að 1. og 2. bekkur æfi saman og 3. og 4. bekk en einnig getur verið blöndun á milli hópa, allt eftir getu hvers og eins.
Hlekkur á æfingahóp á Facebook er hér
Skráning á æfingar fyrir börn í 1.-4. í grunnskólum Ísafjarðarbæjar fer fram í gegnum Íþróttaskóla, hér
Þið sem eru með börn utan Ísafjarðarbæjar skráið börnin ykkar á skíðaæfingar beint til okkar í SFÍ með því að senda tölvupóst á snjor@snjor.is og við skráum þau og setjum þau inn í Sportabler. Æfingagjöld eru þau sömu og börnin fá vetrarkort inn á skíðasvæðið, eini munurinn er skráningaferlið.
BLÁI HÓPUR (krakkar í 5. - 6. bekkur) hefur kost á því að æfa allt árið. Á sumrin eru haldnar þrek- og styrktaræfingar 2-3 sinnum í viku og e-ar æfingar sameiginlegar með öðrum deildum SFÍ. Á haustin eru einnig þrek- og styrktaræfingar utandyra og í Íþróttahúsinu á Austurvegi.
Hlekkur á æfingahóp á Facebook er hér
Skráningar á æfingar fara fram í gegnum Sportabler
SVARTI HÓPUR - 7. bekkur og eldri æfa 3-4 sinnum í viku allt árið. Á sumrin eru þrek- og styrktaræfingar 3-4 sinnum í viku og e-ar æfingar sameiginlegar með öðrum deildum SFÍ. Á haustin eru einnig þrek- og styrktaræfingar utandyra og í íþróttahúsinu á Austurvegi.
Hlekkur á æfingahóp á Facebook er hér
Skráning í æfingar fer fram í gegnum Sportabler