Grétar Smári á móti í Þrándheimi
Um síðastliðna helgi frá Grétar Smári Samúelsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga að taka þátt í keppni í Þrándheimi sem er aðallega hugsuð fyrir U23. Grétar Smári sendi ritara SFÍ upplýsingar um keppnina.
Grétar sagði þessa keppni vera notaða sem úrtökumót fyrir norska unglinga sem vilja komast á HM unglinga fyrir hönd Norges í Lillehammer 2.-8.mars. Grétar sagði að þetta mót væri mjög sterkt og í erfiðri keppnisbraut sem væri góður undirbúningur fyrir Lillehammer. Hann sagði að keppnishelgin hafi byrjað á 10km hefðbundinni göngu með einstaklingsstarti. Grétar skoraði sín bestu FIS stig á ferlinum eða 133.
Daginn eftir keppti Grétar í sprettgöngu með frjálsri aðferð og var sáttur með frammistöðuna sína þar sem hann var númer 70 af 119.
Á sunnudeginum var 20km ganga með frjálsri aðferð þar sem var startað með einstaklingsstarti. Grétar átti fínan dag og var sáttur hvernig hann útfærði gönguna. Fékk hann 137 FIS punkta og sá hvað allar æfingarnar hafa skilað sér síðustu mánuði en hann hefur lagt mikið á sig við æfingar erlendis undanfarna mánuði þar sem hann er búsettur í Noregi. Það mun koma í ljós mjög fljótlega hverjir verða valdir til þess að fara á HM unglinga.
Sannarlega spennandi tímar framundan hjá iðkendum SFÍ, bæði hérlendis og erlendis.