Skíðavertíðin að hefjast hægt og rólega!

Skíðavertíðin að hefjast hægt og rólega!

14. janúar 2026 SFI

Nú fara æfingar að komast í nokkuð fastar skorður miðað við það magn af snjó sem við höfum núna.  Það vantar enn töluverðan snjó en þó er hægt að fara á gönguskíði á litlu svæði á Seljalandsdal og vonum við að sá snjór sem er kominn haldi sér. 

Allar æfingar og skipulag er uppfært í ABLER og ættu þeir krakkar sem æfa skíði að vera skráðir í sinn hóp. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvern og einn hóp og skráningalinkur SFÍ í Abler er að finna hér.  Mikilvægt er að skrá krakkana til að vera í hóp á Abler.

 

En ath þessar upplýsingar miðast við daginn í dag 14/1 og breytist þetta hratt og því mikilvægt að fylgjast með tilkynningum þjálfara í Abler.

 

Skíðaganga.

Guli hópur: Krakkar í 1-4 bekk.  Íþróttaskólinn hóf göngu sína í gær, 13.janúar með fyrstu æfingunni á Seljalandsdal. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtugögum kl 17:00.  Börn eru skráð hjá Íþróttaskóla Ísafjarðarbæjar hér.

 

Blái hópur: Krakkar í 5-6 bekk og krakkar úr 4 bekk sem hafa æft gönguskíði. Þessir krakkar hafa verið á styrktar og línuskauta æfingum meðan beðið hefur verið eftir snjónum. Æfingar eru sameiginlegar með alpa og brettakrökkum.

Austurvegur mánudaga og miðvikudaga kl 18:00
Seljalandsdalur fimmtudaga kl 17:00.

En ath þetta er fljótt að breytast og mikilvægt að vera skráður í Abbler og fylgjast með tilkynningum þjálfara þar.

 

Alpagreinar.

Því miður komumst við ekki enn á snjó og eru styrktaræfingar í boði fyrir krakka í alpagreinum í 5.bekk og uppúr en alveg óljóst hvenær æfingar fyrir yngsta stig, 1.-4. bekk hefjast. Allar upplýsingar um styrktaræfingar eru í Abler.

Svarti hópur:
Æfingarnar eru í Stöðinni á eftirfarandi tímum: 

Sunnudagar kl. 11:00-12:00 
Fimmtudagar kl. 15:30-16:30

Blái hópur: 
Krakkar í 5-6 bekk. Þessir krakkar hafa verið á styrktar og línuskauta æfingum meðan beðið hefur verið eftir snjónum. Æfingar eru sameiginlegar með öllum deildum SFÍ.

Austurvegur mánudaga og miðvikudaga kl 18:00.


Styrktaraðilar