Styttist í ÓL hjá okkar manni!
Vetrarólympíuleikarnir verða settir á Ítalíu þann 6.febrúar og lýkur þann 22.febrúar.
Dagur Benediktsson frá SFÍ mun hefja keppni á Ólympíuleikunum þann 8.febrúar þegar keppt verður í skiptigöngu í Tesero, þar sem allar keppnir í skíðagöngu fara fram.
Dagur er búinn að leggja mikið á sig í undirbúiningi fyrir þetta stærsta svið íþróttamanna. Hann mun taka þátt í 20km skiptigöngu þann 8.febrúar , sprettgöngu 10.febrúar , 10km með frjálsri aðferð 13.febrúar og 50km með hefðbundinni aðferð þann 21.febrúar.
Við fylgjumst að sjálfsögðu spennt með Degi og erum mjög stolt af honum! Hann er frábær fulltrúi Íslands og Ísfirðinga og við óskum honum góðs gengis.
Endilega fylgist með honum á instagram undir " da9gur " og við munum vera dugleg að deila fréttum af honum á instagram einnig undir skidafelag_isfirdinga
Dagur setti inn þetta skemmtilega myndband í gær af undirbúningi fyrir leikana.
https://www.instagram.com/da9ur/reel/DUQf16PDLi9/
ÁFRAM DAGUR!