Gæðahandbók

Gæðahandbók Skíðafélags Ísfirðinga er leiðarvísir fyrir allt starf félagsins og mikilvægt verkfæri til að tryggja fagleg vinnubrögð, öflugt utanumhald og samfellu í starfseminni til framtíðar. Markmið handbókarinnar er að skrásetja verkferla, ábyrgðarskiptingu, stefnumótun og áætlanir þannig að allt starf félagsins sé gagnsætt, skilvirkt og byggt á sameiginlegum grunni.

Handbókin er jafnframt hluti af markvissri vegferð SFÍ til að verða fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Sem slíkt er lögð áhersla á gæði, öryggi, skipulag og vandað samstarf allra sem að félaginu koma, iðkenda, foreldra, þjálfara, stjórnar og annarra sjálfboðaliða. Með því að skrá og samræma ferla verður auðveldara að viðhalda stöðugleika í starfi, tryggja að nýir aðilar geti tekið við hlutverkum af öryggi og að gildi og markmið félagsins haldist óbreytt frá ári til árs.

Gæðahandbókin er lifandi skjal sem þróast í takt við þarfir félagsins. Hún á að styðja við daglegt starf, einfalda ákvarðanatöku og styrkja fagmennsku í allri framkvæmd, hvort sem um er að ræða þjálfun, mótahald, félagsstörf eða stjórnsýslu. Með skýrum verkferlum og sameiginlegri sýn verður félagsstarfið bæði skilvirkara og skemmtilegra fyrir alla sem taka þátt.

Gæðahandbókin verður birt þegar hún hefur verið samþykkt af úttektaraðila ÍSÍ og SFÍ hefur hlotið viðurkenninga að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Styrktaraðilar