Félagið starfar eftir og nýtir Jafnréttisáætlun ÍSÍ og Jafnréttisstofu í öllu starfi sínu. Jafnréttisáætlunin byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og tekur jafnframt mið af lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
Jafnréttisáætlunina má finna hér:
Áætlunin var samþykkt af stjórn SFÍ 17.febrúar 2026 og er aðgengileg á heimasíðu félagsins. Hún skal endurskoðuð reglulega og uppfærð eftir því sem þörf krefur. Jafnréttisstefna félagsins er unnin samkvæmt jafnréttisáætlun ÍSÍ og hún höfð að leiðarljósi í allri stefnunni.
Jafnréttisstefna SFÍ
SFÍ stuðlar að jöfnum tækifærum og jafnri meðferð allra í starfsemi félagsins og mismunar ekki á grundvelli kyns, kynhneigðar, kynvitundar, uppruna, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða, skoðana, litarháttar eða annarrar stöðu. Félagið leggur áherslu á virðingu, sanngirni og þátttöku allra í öruggu og uppbyggilegu íþróttaumhverfi. Jafnréttisstefna SFÍ byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, tekur mið af lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og er unnin með hliðsjón af leiðbeiningum ÍSÍ og Jafnréttisstofu.
Niðurlægjandi framkoma, svo sem einelti, ofbeldi, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni, fordómar og annað ósæmilegt háttalag, er ekki liðin innan félagsins. SFÍ leggur áherslu á skýra verkferla, fræðslu og markviss viðbrögð þegar upp koma mál sem varða virðingu, öryggi og jafnræði. Í því skyni vinnur félagið eftir viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs og kynnir hana starfsfólki reglulega.
Jafnréttisstefna SFÍ nær til iðkenda, þjálfara, stjórnar, nefnda, sjálfboðaliða og starfsfólks félagsins. Stefnan gildir í allri starfsemi félagsins og skal höfð að leiðarljósi við ákvarðanatöku, skipulag, ráðningar, samskipti, umfjöllun og framkomu fyrir hönd félagsins. Hún er lifandi skjal sem er endurskoðað reglulega og uppfærð eftir þörfum. Stjórn félagsins fer árlega yfir framkvæmd stefnunnar og jafnréttisáætlunin sjálf er endurskoðuð á fjögurra ára fresti.
.
SFÍ leggur áherslu á að iðkendur á sama aldri í sömu íþróttagrein fái, óháð kyni, jafn marga og sambærilega æfingatíma. Félagið leggur jafnframt áherslu á að aðstaða og aðbúnaður mismuni ekki iðkendum eftir kyni.
Félagið vinnur að því að samræmi sé tryggt í fjárveitingum til íþróttagreina óháð kyni iðkenda og að möguleikar til fjáraflana í nafni félagsins séu jafnir. Jafnréttissjónarmið skulu höfð að leiðarljósi við skiptingu fjármagns, stuðnings og tækifæra innan félagsins.
SFÍ stefnir að því að þjóna fjölbreyttum hópi iðkenda og vinna markvisst gegn staðalímyndum og fordómum í öllu starfi sínu. Félagið leggur áherslu á að umfjöllun, texti, myndir og annað kynningarefni endurspegli jafnræði og að iðkendum sé ekki mismunað eftir kyni eða vegna annars mismunar í fréttum eða kynningarefni sem félagið sendir frá sér. Fyrirmyndir skulu kynntar með ígrunduðum hætti og viðurkenningar og verðlaun vera sambærileg fyrir öll kyn í sömu greinum.
SFÍ kynnir jafnréttisstefnu sína einnig fyrir styrktaraðilum og samstarfsaðilum og leggur áherslu á að jafnræðis sé gætt í samstarfi og umgjörð viðburða á vegum félagsins.
Allir iðkendur, óháð kyni, eiga rétt á þjálfun sem hæfir aldri þeirra, getu og þroska. SFÍ leggur áherslu á að þjálfarar séu vel menntaðir, vel að sér um jafnréttismál og fái reglulega fræðslu um jafnrétti, fordóma, virðingu og góð samskipti.
Þjálfarar félagsins skulu njóta sömu launa og kjara fyrir sömu eða sambærileg störf, óháð kyni, og hafa sömu tækifæri til að afla sér þekkingar, símenntunar og náms sem nýtist í starfi. Félagið leitast jafnframt við að skapa aðstæður þar sem öll kyn eiga raunhæf tækifæri til að taka að sér þjálfunarhlutverk og vera jákvæðar fyrirmyndir fyrir iðkendur.
Við skipan í stjórnir, ráð og nefndir á vegum SFÍ skal þess gætt að kynjahlutföll séu sem jöfnust. Þegar fulltrúar eru fleiri en þrír skal hlutfall annars kynsins ekki vera lægra en 40%. Félagið leggur einnig áherslu á að öll kyn hafi tækifæri til að koma fram fyrir hönd félagsins á opinberum vettvangi, í fjölmiðlum og við aðra kynningu á starfi þess.
Allir sem taka þátt í starfi SFÍ eiga rétt á virðingu, öryggi og jafnri meðferð í hvívetna. Huga skal að aðgengi og þátttöku fatlaðra iðkenda og aðstandenda þannig að þeir njóti jafns réttar og annarra í starfsemi félagsins. Þetta er í samræmi við þá megináherslu félagsins að þjóna fjölbreyttum hópi þátttakenda og vinna gegn mismunun og fordómum.
Kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni, einelti og hvers kyns ofbeldi á æfingum, keppnisferðum eða öðrum viðburðum á vegum félagsins er ekki liðið. Niðurlægjandi myndefni, klám, ósæmilegt orðbragð og önnur framkoma sem brýtur gegn virðingu eða öryggi einstaklinga á ekki heima í starfsemi félagsins né í efni sem birt er á vegum þess.
Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir áreitni, ofbeldi, einelti eða annarri óviðeigandi framkomu skulu geta leitað til þjálfara, stjórnar eða formanns félagsins, sem ber að tryggja að málið fari í réttan og málefnalegan farveg samkvæmt verkferlum félagsins og gildandi viðbragðsáætlun.
Jafnréttisstefna SFÍ skal vera virk í öllu starfi félagsins. Hún skal kynnt innan félagsins og vera aðgengileg félagsmönnum eftir því sem við á. Stjórn félagsins fer árlega yfir framkvæmd stefnunnar, metur árangur og skoðar hvað gengur vel og hvað megi bæta. Jafnréttisáætlun félagsins er endurskoðuð á fjögurra ára fresti og ný áætlun lögð fram með hliðsjón af reynslu og árangri fyrra tímabils.