Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar. Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.
SFÍ vinnur samkvæmt viðbragsáætlun Samskiptaráðgjafa en tilgangur samræmdrar áætlunar er að sporna við atvikum sem geta mögulega komið upp og leiðbeint starfsfólki, sjálfboðaliðum og fleirum til að bregðast eins og rétt við ef til þess kemur.
Hægt er að nálgast Viðbragðsáætlunina í heild sinni hér