Að vera fyrirmyndafélag ÍSÍ felur í sér að félagið starfi faglega, ábyrgt og með velferð iðkenda í forgrunni. Fyrirmyndafélag leggur áherslu á góð stjórnarhætti, skýra stefnu, öflugt barna- og unglingastarf, hæfa þjálfara og jákvætt umhverfi þar sem virðing, jafnrétti og gleði eru höfð að leiðarljósi. Markmiðið er að skapa öruggt og uppbyggilegt starf þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín, þroskast og taka þátt á sínum forsendum. Viðurkenningin sýnir að félagið uppfyllir ákveðin gæðaviðmið og er góð fyrirmynd í íþrótta- og æskulýðsstarfi.