Haustæfingar SFÍ

Haustæfingar SFÍ

23. september 2026 SFI

Haustæfingar Skíðafélags Ísfirðinga

Haustæfingar Skíðafélags Ísfirðinga eru að fara af stað og í boði eru æfingar fyrir alpagreinar, snjóbretti og skíðagöngu. Æfingarnar eru hugsaðar sem góður undirbúningur fyrir veturinn og eru hópar í boði fyrir mismunandi aldur.

Yngstu iðkendurnir, krakkar í 2.–4. bekk, æfa saman á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30–17:30 undir stjórn Jónu Lindar Kristjánsdóttur. Nánari upplýsingar um æfingatíma annarra hópa og fyrirkomulag haustæfinga má finna í æfingatöflum Skíðafélags Ísfirðinga. Skráning fer fram í Sportabler.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Styrktaraðilar