Minningarorð um Öyvind Olstad
Sú harmafregn hefur borist frá Geilo í Noregi að Öyvind Olstad sé látinn, aðeins 42 ára að aldri.
Í tilkynningu sem fjölskylda hans birti á samfélagsmiðlum þann 10. október segir:
„Lífið hefur verið þér þungt að undanförnu og mánudaginn 5. október varð byrðin svo þung að þú ákvaðst að yfirgefa okkur.“
Öyvind starfaði sem þjálfari 13 ára og eldri hjá Skíðafélagi Ísfirðinga tímabilið 2005–2006. Hann var sjálfur nemandi við NTG-menntaskólann í Geilo og kynntist þar ísfirskum samnemendum sem stunduðu nám og æfingar við skólann.
Það var þessi vinátta sem varð til þess að Öyvind kom vestur á Ísafjörð til að þjálfa. Hann var alla tíð afar hliðhollur Skíðafélagi Ísfirðinga og hélt góðum tengslum við félagið eftir að þjálfarastarfi hans þar lauk.
Að loknu þjálfaranámi við Íþróttaháskólann í Ósló tók Öyvind við þjálfun skíðagöngufólks við NTG-skólann og varð síðar yfirþjálfari þar. Ungmenni úr röðum Skíðafélags Ísfirðinga hafa notið góðs af tengslum hans við skólann, bæði við skipulagningu æfingabúða og með því að fá tækifæri til náms þar. Að minnsta kosti tveir iðkendur félagsins hafa þannig fengið inngöngu í NTG.
Öyvind lætur eftir sig eiginkonu sína, Linn Hege Olstad, og dætur þeirra tvær, Noru, fædda árið 2012, og Selmu, fædda árið 2016.
Stjórn, iðkendur og foreldrasamfélag Skíðafélags Ísfirðinga senda fjölskyldu Öyvinds og skíðasamfélaginu í Geilo innilegustu samúðarkveðjur. Með þakklæti í huga minnast þau samfylgdarinnar við Öyvind og þeirra tengsla sem hann ræktaði við félagið og skíðafólk á Ísafirði.
Skíðafélagið vill minna á söfnunarreikning fyrir dætur Öyvind sem Jakob Einar, vinur hans heldur utan um: 0123-15-178297 190783-4059
Takk fyrir samfylgdina, Öyvind. Minning þín lifir.