SFÍ fyrirmyndarfélag ÍSÍ

SFÍ fyrirmyndarfélag ÍSÍ

1. júní 2026 SFI
1 af 2

Á ársþingi HSV, sem haldið var á Þingeyri þann 27. maí síðastliðinn, hlaut Skíðafélag Ísfirðinga heiðurinn að fá nafnbótina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, afhenti stjórnarmeðlimum og þingfulltrúum félagsins viðurkenninguna.

Stjórn SFÍ er stolt af þessum árangri. Að baki honum liggur mikil vinna og heildræn uppbygging á stefnu og starfsháttum félagsins.

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaviðurkenning íþróttahreyfingarinnar og gildir í fjögur ár. Handhafar hennar hafa samþykkt skýrar stefnur og viðbragðsáætlanir á öllum helstu sviðum:

  • Fræðsla og forvarnir
  • Jafnréttismál
  • Umhverfismál og félagsmál
  • Persónuvernd og siðareglur

Fjölbreytt markmið og skýrar stefnur tryggja að allir sem koma að starfi félagsins vinni að sama takmarki og styrkja SFÍ til framtíðar.

Styrktaraðilar