SFÍ vinnur að því að verða Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Skíðafélag Ísfirðinga stefnir að því að verða fyrirmyndafélag ÍSÍ til að styrkja starfsemi félagsins og tryggja að hún byggist á fagmennsku, öryggi og skýrum gildum. Með því viljum við skapa enn betra umhverfi fyrir iðkendur, þjálfara, sjálfboðaliða og foreldra, þar sem áhersla er lögð á virðingu, gleði, jafnrétti og jákvæða upplifun allra sem koma að starfinu.
Markmiðið er að efla félagið til framtíðar, bæta skipulag og umgjörð og sýna að Skíðafélag Ísfirðinga vill vera traustur og öflugur vettvangur fyrir íþróttastarf á Ísafirði og nágrenni. Vinnan við fyrirmyndafélag er því mikilvægur þáttur í að byggja upp sterkt og heilbrigt félag fyrir börn, ungmenni og samfélagið allt.
Stjórn hefur unnið markvisst undanfarna mánuði að þessari viðurkenningu og er vinnan nú vonandi á lokametrunum. Allar upplýsingar um fyrirmyndafélagið er að finna hér á heimasíðu SFÍ undir Fyrirmyndafélag og verða frekari gögn sett þar inn jafnóðum.