Skíðablaðið 2026 komið út
Skíðablaðið 2026 er komið út. Skíðabörn bera eintök út í hús þessa dagana.
Forsíðumyndirnar eru tvær, af ólympíuförunum Degi Benediktssyni og Örnu Sigríði Albertsdóttur. Í blaðinu eru viðtöl við þau og fjölmargar aðrar greinar af ýmsu tagi. Fjölmörg fyrirtæki styðja útgáfu blaðsins sem Skíðafélag Ísfirðinga er þakklátt fyrir.
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir fór fyrir ritnefnd blaðsins eins og fyrri ár.
Blaðið er hægt að lesa hér á vefnum, undir Útgefið efni, en þar er hægt að lesa Skíðablöð aftur til 1948 auk blaðsins Ferskí sem lengi var gefið út til að styrkja ferðasjóð skíðaiðkenda.