Skíðagönguspor í boði SFÍ

Skíðagönguspor í boði SFÍ

31. mars 2026 SFI
1 af 3

Það er aldeilis við hæfi að SFÍ bjóði upp á gott gönguspor í tilefni Skíðaviku sem sett verður á morgun miðvikudag. Við höfum beðið eftir nægum snjó til að nota sporann sem keyptur var í vetur með Uppbyggingastyrk frá Ísafjarðarbæ.

Búið er að troða um 2 km spor á Siggatúni og 4,3 km spor í Tunguskógi. Vonandi verður svo áframhaldandi blíða eins og á meðfylgjandi myndum og að allir nýti sér sporið yfir páskana.

Gleðilega páska!

Styrktaraðilar